Fjölskyldur

Fjölskyldumyndataka

 Fjölskyldumyndatökur fyrir fullkomlega ófullkomnar fjölskyldur sem taka sig ekki of hátíðlega og langar bara að eiga afslappaðar og eigulegar myndir af sér

Fjölskylda I

30 mín | 38.000 kr.

Innifalið í verði er allt skipulag/samskipti fram að myndatöku. Öll myndvinnsla + afhending á veglegu myndagalleríi af myndum sem ég vel (20+ myndir).

Allar afhentar myndir verða bæði í lit og svart/hvítar og afhentar á lokuðu rafrænu galleríi.

*Einnig innifalið í verð er vsk og allt að 60 mín keyrsla frá Borgarnesi þar sem ég er staðsett

Bóka myndatöku

Iceland Family Photographer
Myndataka

Fjölskylda II

60 mín | 60.000 kr.

Innifalið í verði er allt skipulag/samskipti fram að myndatöku. Öll myndvinnsla + afhending á veglegu myndagalleríi af myndum sem ég vel (40+ myndir).

Allar afhentar myndir verða bæði í lit og svart/hvítar og afhentar á lokuðu rafrænu galleríi.

*Einnig innifalið í verð er vsk og allt að 60 mín keyrsla frá Borgarnesi þar sem ég er staðsett

Bóka myndatöku

Fjölskylduljósmyndari höfuðborgarsvæðið

“Gunnhildur tók svo ótrúlega fallegar myndir af okkur fjölskyldunni. Við mælum heilshugar með henni!”

— Særún Traustadóttir

Fjölskylduljósmyndari
Stykkishólmur ljósmyndari

innimyndatökur

Ég er ekki með stúdíó aðstöðu (eins og er) en oft er heima best.

Eins og kemur fram í yfirskriftinni þá er ég ekki með stúdíóaðstöðu til að bjóða fjölskyldum að koma á (eins og staðan er í dag). Það sem ég hef gert í staðinn er að koma í heimahús með græjurnar mínar og hreinlega búið mér til stúdíó í samvinnu við fjölskyldur á staðnum. Svona heimastúdíó þarf alls ekki að vera flókin uppsetning og oft eina sem þarf er góður veggur. Annað sem ég hef gert sé óskað eftir inni myndum og heimahús hentar ekki, er að ég kem með hugmyndir að innistöðum annarsstaðar fyrir okkur að taka myndir á. T.d. hótel og menningarhús.

Fjölskyldumyndataka í heimahúsi
Heima fjölskyldumyndir

“Gunnhildur er dásamlegur ljósmyndari með hlýja nærveru. Nær vel til barna og gefur sér góðan tíma. Fengum myndirnar nokkrum dögum síðar og voru þær svo fallegar. Mælum hiklaust með og munum nýta okkur Gunnhildi klárlega aftur í fjölskyldumyndatökuna.”

— Ingunn Erla Ingvarsdóttir

Algengar spurningar

  • Fjölskylda I sem er 30 mínútna myndataka er hugsuð fyrir kjarnafjölskylduna. Þ.e. foreldrar og börn. Fjölskylda I hentar vel fyrir t.d. fjölskyldumyndatöku, fermingarmyndatöku, útskriftarmyndatöku og systkinamyndatökur.

    Fjölskylda II sem er 60 mínútna myndataka er hugsuð fyrir stórfjölskylduna. Þ.e. amma og afi með börnum og barnabörnum. Hægt er að skipuleggja allskonar skemmtilegar útfærslur og „hópmyndir“ eins og t.d. amma og afi með barnabörnum. Barnabörn saman. Systkini með börnum og mökum. Hópmynd af öllum saman. Systkinamynd og stakar fjölskyldur innan stórfjölskyldunnar sem dæmi.

  • Ég er ekki með kvóta á hversu margar myndir ég afhendi hverri fjölskyldu að lokinni myndatöku. Engar tvær myndatökur eru eins. Nálgunin mín í myndatökum er fyrst og fremst að ná mómentum yfir uppstilltar myndir svo það er mismunandi hversu margar myndir eru afhentar hverju sinni EN það verða alltaf allavega 20+ myndir í Fjölskylda I og 40+ myndir í Fjölskylda II.

  • Þegar bókað er í myndatöku þá fæ ég email og kennitölu hjá þér. Eftir myndatökuna sendi ég reikning í heimabanka fyrir öllu saman og sendi kvittun í tölvupósti.

  • Við ákveðum staðsetningu í sameiningu. Fyrst ákveðum við hvort við viljum vera inni eða úti að taka myndir. Ef inni, þá er það í heimahúsi þar sem ég býð ekki upp á stúdíó myndatökur nema sérstaklega auglýst. Ef úti, þá kem ég með uppástungur að staðsetningum miðað við hvar þú ert búsett. Það má líka alltaf koma með uppástungur og óskir að staðsetningu.

  • Já – Ég myndi mikið á suðvesturhorninu og þá sérstaklega á stórhöfuðborgarsvæðinu.

  • Ekkert mál og engar spurningar segi ég. Ég skil 100p að ýmislegt getur komið upp á þegar við síst búumst við. Ef af einhverjum ástæðum þú þarft að afbóka þá er nóg að hafa samband og láta mig vita. Þá er annað hvort hægt að afbóka eða, ef áhugi, finna annan tíma fyrir myndatökuna, ykkur að kostnaðarlausu.