Jólamyndatökur á Austurlandi

Jólamyndataka fyrir fjölskyldur á austurlandi

UPPLÝSINGAR UM JÓLAMYNDATÖKUR Á AUSTURLANDI 2026

Gunnhildur ljósmyndari býður fjölskyldum á Austurlandi að koma í jólamyndatökur á Strandgötu 11 á Eskifirði (húsnæði Björgunarsveitar Brimrúnar), sunnudaginn 22. nóvember og laugardaginn 28. nóvember.

Allar myndir eru afhentar fyrir 10. desember, í tæka tíð fyrir jólakortin og jólapakkana. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag og verð má lesa hér fyrir neðan.

Fjölskylduljósmyndari á austurlandi

Mín Nálgun

„Markmið mitt í myndatökum er að öllum líði vel, bæði börnum og foreldrum.

Ég veit að það er ekki auðvelt að vera fyrir framan myndavél, þess vegna reyni ég alltaf að búa til létt andrúmsloft og minni fjölskyldur á að taka sig ekki of alvarlega á meðan á myndatökunni stendur.

Gott er líka að hafa í huga að það er eðlilegt að vera smá stressuð því flest förum við ekki reglulega í myndatökur. Saman getum við gert upplifunina skemmtilega.

Uppstillingin er ekki aðalatriðið hjá mér heldur að ná lifandi og náttúrulegum myndum af börnunum og fjölskyldunni þinni eins og hún á sér að vera, fullkomlega ófullkomin, með alla sína skemmtilegu kæki.“

Gunnhildur Lind, ljósmyndari

jólamyndataka af fjölskyldum á austurlandi
Fjölskyldumyndatökur fyrir jólin á austurlandi
jólamyndatökur á austurlandi
Fjölskylduljósmyndari á austurlandi

Húmor og leikur skipta miklu máli þegar kemur að fjölskyldumyndatöku.

Þegar við tökum okkur ekki of hátíðlega verður upplifunin skemmtilegri, afslappaðri og eftirminnilegri fyrir bæði börn og foreldra.

Lausir tímar
Sunnudagur 22. nóv: 10:30 · 11:00 · 11:30 · 12:00 · 12:30 · 13:00
Laugardagur 28. nóv: 10:30 · 11:00 · 11:30 · 13:00 · 13:30 ·
14:00 · 14:30

ATH.: Fylgstu með ruslmöppunni – svör frá Gunnhildi geta endað þar.

Verðskrá

Jólamyndatökur á austurlandi

Jólamyndatökur í stúdíóstíl

Fjölskyldumyndataka á Eskifirði

Pakkinn hentar vel fyrir alla fjölskylduna, en líka ef þið viljið eingöngu systkina- og stakar myndir af börnunum. Þið getið komið í fínu fötunum og fengið klassískar portrettmyndir í jólakortin, eða verið öll saman í jólanáttfötunum. Valið er ykkar.

Hvað er innifalið í myndatökunni?

  • Öll samskipti, ráðgjöf og skipulag fram að myndatöku.

  • 30 mínútna myndataka.

  • Öll myndvinnsla.

  • Þið fáið allar góðu myndirnar afhentar úr tökunni, ekki bara nokkrar valdar. Yfirleitt 20+ myndir, í lit og svarthvítu, í lokuðu rafrænu galleríi.

  • Allar myndir afhentar fyrir 10. desember.

Verð 48.000 kr.
Verð með vsk.

Lausir tímar
Sunnudagur 22. nóv: 10:30 · 11:00 · 11:30 · 12:00 · 12:30 · 13:00
Laugardagur 28. nóv: 10:30 · 11:00 · 11:30 · 13:00 · 13:30 ·
14:00 · 14:30

ATH.: Fylgstu með ruslmöppunni – svör frá Gunnhildi geta endað þar.

Ýmislegt tengt jólamyndum og prentun á blogginu

Jólamyndir til að gefa í jólagjöf
Hvar er hægt að prenta út myndir fyrir jólin